Kríta sækir fjögurra milljarða króna fjármögnun

Kríta hefur gengið frá fjögurra milljarða króna fjármögnunarsamningi við evrópska sjóðinn WinYield General Partners.

Stefán Jökull Stefánsson, stjórnarformaður Kríta.

Fjártæknifyrirtækið Kríta hefur gengið frá fjögurra milljarða króna fjármögnunarsamningi við breska sjóðinn WinYield General Partners. Samningurinn styrkir ekki aðeins lánabók Kríta heldur opnar dyr fyrir hraðari vöxt og aukna markaðssókn. Jafnframt verður sjóðurinn hluthafi í félaginu, sem undirstrikar traust þeirra á rekstrarlíkani Kríta og vegferðinni.

,,Kríta er fjártæknifyrirtæki sem brýtur upp gamaldags lánakerfi bankanna og setur hraða og stafrænan einfaldleika í forgrunn. Fjármagn sem annars myndi sitja fast í ógreiddum reikningum er sett í umferð, sem skapar aukinn sveigjanleika og tækifæri fyrir fyrirtæki," segir Stefán Jökull Stefánsson, stjórnarformaður Kríta.

Fjármagnið sem var fast í kerfinu er komið í hreyfingu

„Íslensk fyrirtæki hafa of lengi þurft að sætta sig við ósveigjanleika í hægfara lánaferlum bankanna. Kríta snýr þessu við og höfum við fengið góðar viðtökur hjá íslenskum fyrirtækjum með það sem við erum að bjóða en 1.000 fyrirtæki hafa skráð sig hjá Kríta. Frá stofnun höfum við veitt þrjá milljarða í útlán til fyrirtækja en með stærri lánabók höfum við tækifæri á að þjónusta okkar viðskiptavini enn betur,” segir Stefán. 

Viðskiptavinir Kríta eru fjölbreyttir og koma úr öllum atvinnugreinum að sögn Stefáns. Þar á meðal eru fyrirtæki í veitingarekstri, arkitektastofur, bakarí, kökuskreytingarfyrirtæki, sem og fyrirtæki í verktakastarfsemi og einyrkjarekstri.

Breyta ógreiddum reikningum í laust fé

Fyrirtæki geta fengið allt að 100 milljón króna fjármögnun hjá Kríta með því að breyta ógreiddum reikningum í laust fé fyrir reksturinn. Fyrirtæki senda reikninga á viðskiptavini eins og venjulega sem birtast um leið á þeirra vefsvæði á Kríta.is. Þar eru einn eða fleiri reikningar valdir til fjármögnunar og innan 24 klukkustunda berst lánstilboð sem stjórnandi getur samþykkt eða hafnað. Þá geta fyrirtæki einnig fengið allt að 500 þúsund króna fyrirtækjalán.

„Okkar sérstaða liggur í hraða og gagnadrifnu mati. Við horfum ekki bara á lántakann heldur einnig endanlega greiðandann og þeirra viðskiptasamband. Þetta gerir okkur kleift að vera fljótari og sveigjanlegri í þjónustu en hefðbundnir bankar, hvort sem það eru yfirdráttarlán eða aðrar lánavörur. Við erum hraðvirkt og sveigjanlegt fjártæknifyrirtæki og viljum vera áskorandi á hefðbundna bankaþjónustu til fyrirtækja," segir Stefán ennfremur.

Previous
Previous

Hundruð fyrirtækja fengið hraðari aðgang að fjármagni hjá Kríta

Next
Next

Lántaka getur brúað bilið milli fjárfestinga og rekstrar